Bull og vitleysa...
17.05.2007 22:27:39 / elkollos

Josh - Josh - Josh :)

Jæja, þá er maður komin heim úr Reykjavíkinni og búin að fara á tónleikana með Josh Groban. Ó mæ ó mæ... þvílíkir tónleikar :haha: Fyrir fólk eins og mig sem eru aðdáendur frekar rólegrar tónlistar og þá hans var þetta eitthvað sem ég hefði ekki viljað missa af. Hann var alveg frábær og þvílík rödd..... gæfi mikið fyrir að hafa aðeins smá brot af henni. Og svo er hann náttúrulega algjör sykurpúði og bræddi allar konurnar í salnum – og ekki sýndist mér nú karlmönnunum í salnum leiðast neitt heldur, og var nú alveg slatti af þeim, meira en ég bjóst við allavega og margir þeirra sungu hástöfum með... :lol: En semsagt ógleymanlegir tónleikar og ég ekki minni aðdáandi eftir þá...gæti talað mikið um þá en ætla að stoppa hér... Bumbubúinn hafði nú líka sitt að segja um þetta. Annað hvort verður hann líka mikill Josh Groban aðdáandi og dansaði á fullu í bumbunni í byrjun eða þá að hann var að mótmæla kröftuglega. Ég hef fundið svona eitthvað smá undanfarið en ekki verið alveg viss hvort það væru hreyfingar eða eitthvað annað en þarna fór það ekkert á milli mála. Sennilega bara að fíla Joshinn sko... ;)

 

Auðvitað skelltum við okkur aðeins í búðir líka en ekkert svakalega mikið verlsað svosem. Örfáar flíkur sem hylja bumbuna betur en þær sem ég átti fyrir. Ég var nú aðallega í því að borða sjukkmat og bæta á bumbuna á þann háttinn... :^) þannig að nú er það bara skyr og vatn næstu daga.... sjooooor

 

Þegar við vorum að keyra heim í kvöld og vorum í Öxnadalnum þá leist okkur nú ekki á blikuna þegar gaus upp þessi svaka vonda lykt. Við vorum að pæla hvort að bílinn væri að bila eða hreinlega hvort að það væri að kveikna í honum 8| Svo kom í ljós að þetta var lyktin að dekkjunum sem voru að brenna á Krossanesi og lyktin barst alla leið þangað. Þannig að hættuástand bílsins var nú ekki meira en það....:lol:

 

En þá er það bara frystó á morgun.... og næstu vikur – gaman gaman!

 

P.s. minns náði sálfræðiprófinu og alveg SÁTT við það sko!! ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 19:22:09 / elkollos

Allt búið...

Jæja þá er bara allt búið – eurovision, kosningar og skóli...:) Mér var svosem nokkuð sama hvernig júróið fór, bara mjög fegin að Úkraína vann ekki – var alls ekki að fíla þetta. Var reyndar frekar fúl þegar ég heyrði hvað munaði litlu að Eiki kæmist áfram. Þurfti ekki nema að nokkrir íslendingar í Evrópu myndu kjósa aðeins meira. Svekkjandi en maður verður víst bara að bíta í það súra..:$

Er hins vegar ekki eins sátt við það hvernig kosningarnar fóru – alveg tími til komin að breyta aðeins til í þessu landi hérna. En það virðist ekkert benda til þess, finnst bara ansi skítt að Framsókn sjái það ekki að kjósendur vilja greinilega ekki hafa þá við stjórn lengur – afneitun á hæsta stigi. Skamm skamm Frammarar....:klikk: 

Og svo er skólinn loksins búin :lol: Var að skila af mér síðasta verkefninu í gær þannig að nú er ég bara stikkfrí fram á haust... vonandi allavega...

Ég er byrjuð að vinna á frystó og fyrstu dagarnir þar fóru næstum því alveg með mig. :cry: Hefði aldrei getað trúað því að það væri svona erfitt að byrja aftur eftir langan tíma. Svo byrja ég mjög vel því ég var veik í gær og dag. Er búin að vera með djéskoti leiðinlegt kvef og snýti mér á 5 mín fresti. Þannig að núna er ég með mjööög rauðar nasir. Ég ætla bara rétt að vona að þetta fari að skána þar sem ég er að leggja upp í ferð til Reykjavíkur á morgun og á tónleikana á miðvikudaginn. Já tónleikana með JOSH GROBAN :haha: :haha: Jei jei !!! Magnea Lind fer með mér og krakkarnir hennar Magneu (bekkjarsystur) líka og ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt með þeim líka. Þannig að næst þegar þið heyrið frá mér verð ég vonandi í sæluvímu eftir tónleikana... 

Adios


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 21:59:09 / elkollos

Júró smúró...

Jæja smá færlsa um júró-keppni kvöldsins. Kom mér ekkert á óvart að við kæmumst ekki áfram - ekki það að mér finnist lagið ekki fínt. Ég bara held því fram að við eigum aldrei séns á að komast uppúr þessari blessuðu forkeppni fyrr en keppninni verður skipt í austantjaldsþjóðir og svo rest og svo haldin aðalkeppni uppúr þeim tveimur. Það sést líka best á því hvaða lönd komust áfram í kvöld - austurevrópuþjóðir.. :$ Það er ekkert að verða gaman af þessu þegar þetta er svona... og ekkert norðurlandanna komst áfram... þetta er bara bull!! :lol:

Það er samt gaman að horfa á þetta en væri enn skemmtilegra ef fyrirkomulaginu yrði aðeins breytt. Ég var svosem nokkuð ánægð með þau lög sem fóru áfram nema lagið frá Georgíu og þó að ég hafi hingað til verið hrifin af ungverska laginu þá var það ekki að gera neitt fyrir mig í kvöld. Mjög sátt við að Hvíta Rússland og Lettland hafi farið áfram - það voru fín lög.

Þá er bara að gera sig reddí fyrir laugardagskvöldið og vona að stjörnuprýddi klæðskiptingurinn með hörmulega lagið sigri ekki - það er bara vont lag...;)

Júrókveðjur frá Elkollos


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 22:17:36 / elkollos

I´m alive!!!!

Jæja þá er mánuður frá síðustu færslu og komin tími á nýja :lol:

Það er búið að vera nóg að gera, lokamánuður skólans og hörkuvinna í að klára allt sem þurfti að klára og skila af sér. Svo fór ég í eina prófið mitt í morgun, 90 krossaspurningar í Þroskasálfræði... voða erfitt að segja hvernig gekk en við bara voooonum hið besta :$ Þá er “bara” eftir að vinna 35% íslenskulokaverkefni og ætla ég að skella mér í það næstu daga

 

Júróvision nálgast óðum og búið að vera að flytja lögin í sjónvarpinu undanfarin föstudagskvöld. Ég hef nú ekki getað sokkið mér eins vel ofan í þetta og ég hefði viljað en ég næ því kannski í næstu viku :p Allavega júró framundan og ekkert leiðinlegt við það :haha:

 

Svo byrja ég að hoppa um í frystihúsinu á mánudaginn og þeir losna ekki við mig þar fyrr en eftir rúmlega 2 mánuði  BUWAHAHAHA..... Verð semsagt á Dallas næstu vikurnar.

Svo styttist í Reykjavíkurferðina mína á Josh Groban tónleikana, aðeins hálfur mánuður í það... eitthvað á reyndar líka að skröltast í búðir en það verður sennilega ekkert svakalega mikið um það. En tónleikarnir verða þó hápunkturinn...;)

 

Bumbubúinn dafnar og hefur það gott, og hann stækkar líka greinilega því að það er bara komin stærðarinnar bumba á mig :lol: Á sama tíma þegar ég gekk með Magneu var ég með nánast flatan maga – einhver örlítil bunga kannski farin að myndast en ekkert eins og nú... En það eru allavega komnar 16 vikur og allt í góðu standi bara og ég að hressast og farin að geta borðað flest allan mat, ekki bara brauð eins og var í 2 mánuði

 

Um síðustu helgi var litla dúllan hún frænka mín skírð og heitir hún Hugrún Jana, flott nafn á litlu prinsessunni. En allt gegnur bara vel þar líka og hún dafnar vel.

 

En jæja, þetta er gott í bili. Læt vita af mér....... einhvertíman....:$


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 19:53:22 / elkollos

Ég er á leiðinni..... :)

Jæja þá er það klappað og klárt ... ég er á leiðinni á Josh Groban tónleikana. Var tilbúin alveg vel fyrir sölutímann og náði strax miðum. Jíhaaaaaaa....:haha: Svo voru auðvitað settir á aukatónleikar með krúttinu.... hihi. Þá er bara að betla tveggja daga frí í vinnunni þegar ég verð ný byrjuð að vinna þar – það hlýtur að hafast ;)

 

Annars er svosem ekki mikið annað að frétta. Ég er formlega komin í páskafrí en svona óformlega er ég að drukkna í lærdómi – ekkert alltof dugleg samt að koma mér að verki svona í fríi :( En maður verður að láta sig hafa það til að vera ekki með allt á hælunum í lok maí.

 

Ég er búin að páskaskreyta allt hjá mér hérna. “Allt” páskaskrautið sem ég á og fannst vera alveg hryllilega lítið í fyrra virkar alveg svakalega mikið hérna í þessari litlu kompu minni... Þannig að það er bara ansi fínt og páskalegt hjá mér hérna núna. Og efst upp á hillu tróna páskaeggin og bíða þess að hverfa ofan í gráðuga munna um næstu helgi..... jöööömmmmíííí :lol:

 

Fór í fermingarveislu í Skagafirði í gær. Hitti þar fullt af ættingjum pabba megin sem ég hef ekki hitt í einhver ár – bara gaman af því. Og að sjálfsögðu borðaði ég allt of mikið og fór veltandi út í bíl og sat eins og klessa í bílnum á leiðinni heim... svona er að hafa ekki stjórn á sér :^)

 

En jæja nóg í bili, of mikið blogg á stuttum tíma – ofraun fyrir mig... hihi ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 10:12:27 / elkollos

Hæ hæ og hó hó

Jæja þá er komið að því – bloggfærsla mánaðarins lítur dagsins ljós...:$

Það er nú svosem ekki mikið merkilegt að gerast. Það er búið að vera nóg að gera í skólanum undanfarið, ljóðaverkefni, gjörningur, fyrirlestrar og bara endalaus verkefni framundan núna. Svona er það víst að vera í mörgum próflausum áföngum – allt vitlaust að gera í verkefna vinnu. En það eru víst ekki eftir nema 3 kennsluvikur fram að prófum þannig að þessari önn fer nú brátt að ljúka. Þá tekur bara við endalaus gleðí hjá mér meðal fiskanna í frystihúsinu á Dallas, maður verður víst að vinna sér inn einhverjar krónur í sumar.

 

En ég er víst orðin föður systir og bara þokkalega ánægð með það :D Emil og Jóna búin að bæta við stelpnastóðið í fjölskyldunni sem er orðið ansi stórt ;) En það gengur bara allt vel þar og prinsessan auðvitað algjööööör dúlla

 

Ég er að stefna að því að fara á tónleika með Josh Groban 16. maí í Laugardagshöll, þ.e.a.s. ég fer ef ég fær miða.... það verða víst eitthvað fáir í boði. Ég ætla að skella mér með Magneu bekkjarsystur og fara bara svona sólahringsferð. Það er nú alveg komin tími til að kellan skelli sér á tónleika svona einu sinni og þessir heilluðu mig alveg svakalega.... hann er algjört kjúttípútúttí :lol:

 

En best að fara að sökkva sér betur ofaní skólabækurna – ekki veitir af eftir töluverðan trassaskap síðustu daga....

 

Hilsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 21:22:21 / elkollos

missingur í aðdáendum

Hef verið að tala við slatta af fólki eftir júróið og vafra á netinu og lesa umsagnir. Það virðist sem flestir þeir sem studdu Frikka hafi allt í einu myndað svakalegt hatur gagnvart Eiríki Hauks... sem sennilega hefur ekki verið til staðar fyrir keppnina :$ Finnst margt af því sem ég hef lesið vera alveg ótrúlegt, skítkastið sem greyið maðurinn er að fá og á það ekki skilið því að hann vann nú bara, og það með miklum yfirburðum. Það má ekki misskilja mig, ég hef ekkert á móti Frikka sjálfum, hefði alveg verið sátt ef hann hefði unnið og farið út - fínt lag og hann auðvitað frábær söngvari. En sumir aðdáendur aðeins að missa sig of mikið....;) Hef ekki heyrt þetta frá fólki sem hélt með öðrum lögum. Á mörgum stöðum er líka talað um að Eldur hafi verið eina lagið sem gæti sigrað eurovision... - en sorry bara það er alveg sama hvaða lag við sendum út.... við erum ekki að fara að vinna keppnina. Myndi kalla það asskoti gott bara að komast upp úr forkeppninni :lol:  Nú er ég sjálf enginn brjálaður Eika fan, viðurkenni alveg að hann er ekkert sá "nýjasti" á tónlstarsviðinu, en so what!! Mæli bara með að allir slaki aðeins á og séu ekki drulla yfir menn af því að þeir vinna söngvakeppni, þetta er bara til að hafa gaman af því :D

» 12 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 03:40:20 / elkollos

Go Eiki... go Eiki :)

Vááá hvað ég er sátt!! Gæti ekki verið sáttari, Eiki lang bestur í kvöld – sama hvað hver segir. Var ekki búin að gera upp hug minn fyrir kvöldið, valið var á milli Eika, Frikka og Jónsa en.... eins og ég sagði þá var hann bara lang bestur

Hefði reyndar alveg viljað sjá Jónsa í þriðja sæti en ekki þetta ömurlega Pál Óskars eftirhermulag – nett stæling! 8| En nú er það bara áfram Eiki Hauks og vonandi erum við komin með slatta af stigum frá norðmönnum... hihi

Ekki meira í bili, er að koma heim af júróvision djammi – varð bara að deila gleði minni ..... :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 00:10:48 / elkollos

Endalaus gleði....

Jæja nú á að reyna að koma einhverju frá sér. Svosem ekki mikið að gerast þessa dagana. Er búin að liggja yfir frekar óskemmtilegu verkefni undanfarið og fyrir trassaskap þá þurfti ég að eyða föstudagskvöldi í að klára það – mjöööög skemmtilegt. En það er búið og nú tekur bara annað eins verkefni við :$

Einkennilegt hvernig þessir eurovision þættir skiptust niður, svo virðist sem einu almennilegu lögin hafi lent í miðjuþættinum. Fannst þátturinn í kvöld ekki upp á marga... hefði ekki getað verið meira sama hverjir komust áfram. Nema jú, ég var svona nokkuð sátt við að Ómar Ragnarsson kæmist ekki áfram með sitt lag. Ef svo hefði verið hefði það bara verið af því að þetta var hann. Reyndar held ég að flest allir séu að verða búnir að fá nokkuð nóg af honum Ómari, ég allavega held að hann sé ekki langt frá því að tapa glórunni endanlega .... 8|

Hvernig er þetta annars með sjánvarpsdagsskránna hjá Rúv um helgar. Það sem er reyndar aðeins að lyfta þessu upp núna er júró, þó það hafi ekki gert mikið fyrir mann í kvöld. Þeir mega alveg eiga það að þeir eru með alveg ágæta þætti á virkum dögum en helgarnar eru ömurlegar, ekkert nema leiðindar- og frekar gamlar bíómyndir – jakk!... verð að muna að senda Páli Magnús póst við tækifæri svo eitthvað verði nú gert í þessu (jee ræt)

Þar sem greinilegt er að ég hef lítið jákvætt að segja þá ætla ég bara að hætta áður en ég drep fólk úr leiðindum....

Kv. Frá Kollu skælbrosandi :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 18:59:47 / elkollos

Jæja nú er ég hætt....

Jæja, undanfarna daga hefur verið í gangi óþrjótandi handboltaáhugi hjá elkollos, sem ekki áður hefur gert vart við sig í svo miklum mæli. Eftir sólhrings snökt og svekkelsi hef ég ákveðið að skella inn síðustu handboltafærslunni og svo ég geti farið að snúa mér að einhverju öðru.

Eins sárt og þetta tap fyrir Dönum í gær var fyrir flest alla landsmenn (miðað við viðbrögð) þá held ég að það sé varla hægt að hugsa sér hvernig þetta var fyrir “strákana okkar”. Þvílíkt svekkelsi sem þetta var og voru þeir margir hverjir niðurbrotnir eftir leikinn, ég vorkenndi þeim agalega þegar ég sá fréttirnar í hádeginu. :$En þrátt fyrir að komast ekki í undanúrslitin þá held ég að við getum setið sátt eftir og verið stolt af strákunum. Ef við hugsum aðeins út í stærðina á þjóðunum sem eru að keppa þá erum við nú ekki nema 300 þús – og heldur betur ekki allt saman karlmenn – þannig að úr aðeins færri mönnum er að velja hjá okkur en öðrum þjóðum sem hafa kannski úr einhverjum milljónum að velja !!

Ég segi því bara að hvort sem við verðum í 5. eða 8. sæti þá held ég að við getum verið nokkuð sátt við að vera þó á meðal 8 bestu. Strákarnir hafa staðið sig eins og hetjur og getum við ekki annað en verið stolt af þeim að mínu mati. Nú er bara um að gera að hafa gaman af restinni – hvernig sem fer!! Það þyrfti að taka vel á móti þeim þegar þeir koma heim, þeir eiga skilið gott klapp á bakið fyrir sína frammistöðu.:D

 

 



En þetta verða semsagt mín lokaorð um handboltann (sennilega) og get ég vonandi farið að tjá mig um önnur mál núna (væntanlega eurovision – allavega í einhvern tíma.....  já, já ég er nörd!! :^)). Áfram Ísland, hvernig sem fer!!!

 

 



P.s. ekki annað hægt en að hlæja af þessu – greinilega hiti í mörgum í gær...:lol:

Tekið af Mbl.is : Innlent | mbl.is | 31.1.2007 | 14:26

Lögregla kölluð út vegna handboltaáhugamanna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að fjölbýlishúsi í Kópavogi um hálfníuleytið í gærkvöld. Sá sem hringdi í lögregluna var áhyggjufullur og sagði að öskur og læti heyrðust úr íbúð í stigaganginum. Þegar að var gáð reyndast þetta eiga sér eðlilegar skýringar. Fólkið í íbúðinni var að fylgjast með viðureign Íslendinga og Dana á HM í handbolta.

Að sögn lögreglu var leikurinn æsispennandi og þurfti framlengingu til að knýja fram úrslit. Þarna voru húsráðendur að hvetja strákana okkur til dáða en því miður dugði það ekki til, að sögn lögreglu.


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 21:29:24 / elkollos

Þar fór það.....

Jæja sorglegasti dagur í minni íþróttaáhugasögu. Jesús hvað maður er svekktur :(  Var hætt að geta horft á þetta og þetta var rosalega grátlegt. Á eftir að læra helling fyrir morgundaginn en held bara að ég geti það ekki úr þessu. En það er lítið við þessu að gera, strákarnir “okkar” gerðu marg gott og þetta var bara asskotas óheppni á lokakaflanum. Get ekki sagt neitt meir og kveð bara með grátstafinn í kverkunum......:cry: :cry:

Adios


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 22:50:22 / elkollos

Gleði gleði

Jæja mikil gleði í gangi eftir daginn í dag. Strákarnir í landsliðinu tókst að koma sér í “drápsgírinn” þó það hafi nú ekki mátt muna miklu þarna á lokakaflanum, en ég hef sjaldan verið eins stressuð eins og yfir leiknum í dag. Var hálpartinn komin inn í sófasettið og titraði þegar leikurinn var búinn... bara gaman af þessu. En nú getur maður þó horft á leikinn á morgun án þess að þurfa að hafa áhyggjur að blóðþrýstingnum þar sem við erum örugg áfram.

Eurovision í kvöld fór svo nákvæmlega eins og ég vildi – mínir menn komust allir áfram. Ég hef tekið þvílíku ástfóstri við lagið sem Jónsi syngur, þó svo að ég hafi ekki alveg verið að fíla búningana... þeir hefðu nú mátt fara betur :$ Nema jú ég fattaði hvað hann var að fara með þessum háa skyrtukraga – enda eru æðarnar í hálsinum á honum ekkert til að dást af þegar þær eru í fullum skrúða.

Semsagt taumlaus gleði í gangi í herbúðum Elkollos þessa stundina  :lol: :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 21:15:14 / elkollos

hæ hæ og hó....

Jæja taka tvö .... á öðru bloggsvæði.... ;)

 

 



Veit nú ekki hvort ég endist frekar hér en ætla að prufa þetta aftur.

 

 



Skólinn er byrjaður aftur eftir jólafrí en ég virðist samt að einhverjum hluta vera enn í jólafríi – mér gengur agalega illa að koma mér af stað aftur. En það fer nú vonandi að koma. Það verður allavega að gera það þar sem verkefnin eru nú þegar farin að hellast yfir okkur.

 

 



Annars eiga handboltinn og eurovision í mér hverja taug þessa dagana. Alltaf gaman af eurovision og stefnt á europartý hjá Brynju Lú annað kvöld. Yfir handboltaleikjunum undanfarið hef ég hins vegar alveg misst mig og fylgist með þessu öllu af miklu kappi. Enn einn missingurinn á morgun þegar “við” keppum við Slóvena og strákarnar verða bara að koma sér í drápsgírinn :klikk: og þýðir ekkert annað en að sigur og hana nú!! Áfram Ísland... :lol: 

 

 



Semsagt eintóm gleði framundan og nóg af rausi í bili....


» 4 hafa sagt sína skoðun